Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson (fæddur 19. júní 1953) er iðnaðarráðherra og þingmaður fyrir Samfylkinguna.

Tilvitnanir breyta

skrifaði Össur á bloggsíðu sinni 20. febrúar 2008
  • Hillary er ódrepandi töffari.“
skrifaði Össur á bloggsíðu sinni 23. febrúar 2008
  • „Ég meina, ég stóð allsber í búningsklefanum í World Class, var að fara í gufubað á sunnudegi og var að halda mér sérstaklega til því að ég var í fyrsta skipti á ævinni að fara til klæðskera. Og leit á símann minn í fötunum áður en ég fór í gufuna og þá sá ég bara að þar voru ógeðslega mörg símtöl og sms frá Einari Karli sem var staddur í Glasgow og sagði að það væru allir að leita að mér.“
frásögn Össurar af atburðarásinni skömmu fyrir fall Glitnis í september 2008, í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem kom út 12. apríl 2010
  • „Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út.“
frásögn Össurar af atburðarásinni skömmu fyrir efnahagshrunið á Íslandi í október 2008, í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem kom út 12. apríl 2010

Tenglar breyta