„Biblían“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Lína 82:
{{Tilvitnun|Svo segir Kýrus Persakonungur: Drottinn, Guð himinsins, hefur gefið mér öll konungsríki jarðar. Hann hefur sjálfur falið mér að reisa sér hús í Jerúsalem í Júda. Sérhver ykkar sem hér er af öllum lýð hans skal halda upp til Jerúsalem í Júda og vinna að byggingu húss Drottins, Guðs Ísraels. Guð hans sé með honum. Hann er sá Guð sem er í Jerúsalem. Og hvarvetna, þar sem einhver er enn aðkomumaður, eiga heimamenn að sjá honum fyrir silfri, gulli, lausafé og kvikfénaði og auk þess sjálfviljagjöfum til húss Guðs í Jerúsalem.|útskýring = Esra 1:2-4}}
{{Tilvitnun|En hver sem ekki breytir í öllu eftir lögmáli Guðs þíns og lögmáli konungs skal leiddur fyrir rétt og dæmdur til dauða, útlegðar, sektar eða í fangelsi.|útskýring = Esrabók 7:26}}
 
==== Nehemíabók ====
 
{{Tilvitnun|Við munum hvorki fá framandi þjóðum í landinu dætur okkar að eiginkonum né taka dætur þeirra að eiginkonum handa sonum okkar. Þegar aðrar þjóðir í landinu bjóða vörur til kaups á hvíldardegi, einkum ýmiss konar korn, munum við hvorki þiggja neitt af þeim á hvíldardegi né á öðrum heldum degi. Sjöunda hvert ár munum við ekki nýta það sem landið gefur af sér og gefa eftir hverja skuldakröfu.|útskýring = Nehemía 10:31-32}}
 
=== Úr Nýja testamentinu ===