Evripídes (um 480 - 406 f.Kr.), forngrískt leikskáld.

Evripídes
Bacchae

Tilvitnanir breyta

  • „Hve skaðvæn reynist æskan öllum dauðlegum
    ef ekki er sáð til réttlætis á fyrstu tíð.“
Andrómakka 184-185 (þýð. Helga Hálfdanarsonar)
  • „Þeir kallast hyggnir, sem í ásýnd virðast vel,
    en eru þó hið innra rétt sem múgamenn,
    að undan skildum auði, sem er þeirra traust.“
Andrómakka 330-332 (þýð. Helga Hálfdanarsonar)
  • „Þeim dauðlega mun dauðleg hugsun sæma bezt.
    Því ygglibrún og ólund hygg ég valdi því
    að ekkert líf sé lífið, heldur sorglegt slys.“
Alkestis 800-802 (þýð. Helga Hálfdanarsonar)
  • „Aldrei mun veröld öðlast frið,
    aldrei styrjöld af borgum létta,
    eigi vopnin að semja sátt.“
Helena 1155-1158 (þýð. Helga Hálfdanarsonar)
  • Ástin veit hvorki á heill né fremd
    ef hamslaus brýtur hún allar skorður
    eins og æðandi fljót.“
Medea 626-628 (þýð. Helga Hálfdanarsonar)
  • „Hve spillt er mannlegt hjarta! Hvað skal sökkva djúpt?
    Hvar skyldi gráðug frekja finna takmörk sín?
    Ef hver ný kynslóð tekur hinum fyrri fram
    í ódrengskap, sem einlægt magnast jafnt og þétt,
    er alveg víst, að goðin skapa nýjan heim,
    auk þessa sem vér þekkjum, til að geta hýst
    hvern þann sem kýs að þjóna lygi og rangindum.“
Hippolýtos 936-942 (þýð. Helga Hálfdanarsonar)
  • „Hver sá sem vanrækir lærdóm sinn á meðan hann er ungur
    týnir fortíð sinni og framtíð.“
Evripídes (gömul tugga tekin úr samhengi) (þýð. Ágúst B. Helgason)

Tenglar breyta

Wikipedia hefur grein um

http://www.britannica.com/EBchecked/topic/195618/Euripides/195618suppinfo/Supplemental-Information#toc195618quotes