Margaret Thatcher
Forsætisráðherra Bretlands (1925–2013)
Margaret Thatcher (13. október 1925 – 8. apríl 2013) var forsætisráðherra Bretlands á árunum 1979-1990 og leiðtogi breska Íhaldsflokksins 1975-1990.
Tilvitnanir
breyta- „The Iron Lady of the Western World. Me? A Cold War warrior? Well, yes—if that is how they wish to interpret my defence of values, and freedoms fundamental to our way of life.“
- („Járnfrú Vesturlanda. Ég? Kaldastríðskona? Já, einmitt — ef þeir vilja leggja þann skilning í málsvörn mína fyrir þeim verðmætum og réttindum, sem okkur þykja ómissandi.“)
- Ræða í kjördæmi hennar í Finchley 31. janúar 1976. Nokkrum dögum áður hafði málgagn Rauða hersins rússneska, Rauða stjarnan, kallað Thatcher, sem verið hafði þá formaður Íhaldsflokksins í eitt ár, „járnfrúna“, sem hygðist blása aftur til kalds stríðs.
- „You turn if you want to — the lady’s not for turning.“
- („Snúið við, ef þið viljið, en frúin heldur sínu striki.“)
- Ræða á flokksþingi breskra íhaldsmanna 10. október 1980. Thatcher leikur sér hér að heiti leikrits e. Christopher Fry (f. 1907), The Lady’s Not for Burning (1948), en sá orðaleikur er illþýðanlegur á ísl. Í forsætisráðherratíð E. Heaths 1970-1974 hafði skyndilega verið skipt um stefnu í efnahagsmálum, og var þá talað um „U-turn“ eða umsnúning.
- „No one would remember the Good Samaritan if he’d only had good intentions. He had money as well.“
- („Hefði miskunnsami Samverjinn aðeins haft viljann til góðra verka, þá væri hann löngu fallinn í gleymsku. En hann hafði líka peninga.“)
- Sjónvarpsviðtal 6. janúar 1986, sjá The Times 12. janúar 1986.
- „There is no such thing as Society. There are individual men and women, and there are families.“
- („Það er ekki til neitt Samfélag. Það eru til einstakir karlar og einstakar konur, og það eru til fjölskyldur.“)
- Woman’s Own 31. október 1987.