Wikivitnun:Það sem Wikivitnun er ekki
Wikivitnun:Wikivitnun lýsir því stuttlega hvað Wikivitnun er og hver markmið þess eru. Eftirfarandi er stutt lýsing á því sem Wikivitnun er ekki.
Wikivitnun er ekki alfræðirit
breytaWikivitnun er ekki það sama og systurverkefnið Wikipedia. Enda þótt mælt sé með því að hafa stuttan inngang á síðum, sem lýsir því um hvað tilvitnanirnar fjalla, er ekki ætlast til þess að hér sé að finna greinar um viðfangsefnin.
Wikivitnun er ekki orðabók
breytaWikivitnun er ekki staður fyrir orðabókaskilgreiningar, líkt og systurverkefnið Wiktionary. Tilvitnanir geta verið um eitthvert tiltekið efni, svo sem ást en ekki um hvaða orð sem er.
Wikivitnun er ekki kennslubók
breytaWikivitnun er ekki upplýsingaveita eins og kennslubók eða leiðbeiningarbæklingur. Sjá Wikibækur.
Wikivitnun er ekki hýsingaraðili fyrir skjöl í almannaeigu
breytaWikivitnun hýsir ekki efni í almannaeigu svo sem ýmiss konar skjöl, bréf, lagabálka, heilar bækur eða kvæði.
- Frægar ræður sem hafa sagnfræðilegt gildi eiga heima á Wikiheimildum.
- Bækur í heild sinni eiga heima á Wikiheimildum eða Wikibókum.
- Myndir og annað margmiðlunarefni í almanna eigu á heima á Wikimedia Commons.
Wikivitnun er ekki heimasíða
breytaWikivitnun er ekki Myspace. Allir skráðir notendur geta búið til notandasíðu um sjálfan sig sem virkan notanda Wikiquote, en þær ætti ekki að nota til að fjalla um hluti ótengda Wikivitnun. Sjá Wikivitnun:Notendasíður um notkun notendasíðna.
Wikivitnun er ekki safn tilvitnana í sjálfan þig
breytaÞú ættir ekki að byrja setja inn tilvitnanir í sjálfan þig eða vini þína.
Wikivitnun er ekki netfangaskrá
breytaGreinar eru fyrst og fremst ætlaðar tilvitnunum, ekki handahófsvöldum tenglum. Þú ættir ekki að byrja á nýjum síðum einungis til að koma að tengli á uppáhaldssíðuna þína.
Wikivitnun er ekki bloggsíða
breytaWikivitnun er ekki safn bloggfærslna frá hinum og þessum bloggsíðum. Þótt notendur megi birta hugleiðingar sínar á notandasíðu sinni ættu þeir þó ekki að nota hana sem bloggsíðu.
Wikivitnun er ekki umræðuvefur
breytaNotendur mega spjalla saman á spjallsíðum sínum og í pottinum en spjallið ætti að snúast um samvinnu þeirra hér, ekki um daginn og veginn. Sömuleiðis ætti einungis að spjalla um viðkomandi grein á spjallsíðu greinarinnar.
Wikivitnun er ekki staður fyrir langar tilvitnanir úr höfundaréttarvörðu efni
breytaWikivitnun er ekki safn sönlagatexta eða kvæða. Og annað höfundaréttarvarið efni ætti ekki að setja á Wikivitnun í stórum stíl; tilvitnanir úr slíkum verkum ættu að vera stuttar.
Athugið að þótt höfundaréttarvarið efni sé að finna á netinu er ekki þar með sagt að það sé í almanna eigu.
Wikivitnun safn auglýsinga
breytaWikivitnun er ekki rétti staðurinn fyrir auglýsingar.
Tengt efni
breyta